Ein vika eftir af janúar, ég trúi því varla, en hér að neðan eru instagram myndir síðastliðinn mánuð. Endilega followið /helgajohanns - er mjög virk þar.
- helga
Ein vika eftir af janúar, ég trúi því varla, en hér að neðan eru instagram myndir síðastliðinn mánuð. Endilega followið /helgajohanns - er mjög virk þar. - helga
8 Comments
Smá inspo inn í helgina, ég er greinilega í einhverju stuði fyrir eitthvað sporty skater look því ég er eiginlega bara búin að pinna það undanfarið! Efst á óskalistanum er einmitt Carhartt WIP jakki eða PALACE jakki, þeir eru mega fínir.
- helga Tveir hlutir eru búnir að bætast í fata/skó skápinn nýlega: Kápa: Karakter / Skór: Le Blanc - GS skór Kápuna keypti ég í dag í Karakter í Smáralind, en ég var búin að leita lengi að hinni fullkomnu oversized kápu - án alls gríns í allavega 2-3 ár! Ég fíla þessa mega vel því hún er mjög oversized og bandið aftan á er möst að mínu mati. Það er útsala á flestu í Karakter og kápan var á 40% afslætti, mjög næs - fékk hana á 17.995.- í staðin fyrir 29.995.-
// Skónna fékk ég í jólagjöf frá mínum manni en þeir eru keyptir í GS skóm. Kannski viðeigandi að bæta því hér við að ég er semsagt tekin við sem verslunarstjóri í GS skóm í Smáralind og eru því mjög skemmtilegir tímar framundan. - helga Ég er í - rúllukragabol frá Zara / jakka úr Spúútnik laugarvegi Jólafríið var svo sannarlega mjög gott en ég er fegin að vera komin aftur heim til rvk! Ég kom heim í gær og átti planað deit í gærkvöldi með Berglindi vinkonu, en hún býr úti í Hollandi og er að læra sálfræði. Við rétt náðum að hittast en hún fór aftur út í morgun. Við fórum á tíu dropa, og Vala kom svo og hitti okkur, mega kósý kvöld!
Árið byrjaði svo sannarlega vel. - helga Ég elska Instagram - eyði ófáum tímum dagsins í að rúlla í gegnum það, stundum rekst ég svo á einhverja töffara, og þessi er ein af þeim sem ég hef rekist á - Veneda Budny. Hún er algjör töffari - er dönsk/pólsk og er módel - mæli með að kíkja á IG hennar: Það er @venedaanastasia, getið ýtt á nafnið og þá fariði inná grammið hennar! - helga |
Instagram: helgajohanns Flokkar |