Tveir hlutir eru búnir að bætast í fata/skó skápinn nýlega:
Kápa: Karakter / Skór: Le Blanc - GS skór
Kápuna keypti ég í dag í Karakter í Smáralind, en ég var búin að leita lengi að hinni fullkomnu oversized kápu - án alls gríns í allavega 2-3 ár! Ég fíla þessa mega vel því hún er mjög oversized og bandið aftan á er möst að mínu mati. Það er útsala á flestu í Karakter og kápan var á 40% afslætti, mjög næs - fékk hana á 17.995.- í staðin fyrir 29.995.-
// Skónna fékk ég í jólagjöf frá mínum manni en þeir eru keyptir í GS skóm. Kannski viðeigandi að bæta því hér við að ég er semsagt tekin við sem verslunarstjóri í GS skóm í Smáralind og eru því mjög skemmtilegir tímar framundan.
- helga